Þung ökutæki á Suðurhellu 9 frá 11. maí

Frá og með 11. maí mun skoðun bifreiða sem eru þyngri en 7.500 kg ekki lengur fara fram á Hjallahrauni 4.

Við erum spennt að tilkynna að þung ökutæki (7.500 kg+) verða nú skoðuð á glæsilegu og nýju skoðunarstöð okkar á Suðurhellu 9 í Hafnarfirði. Þar er sérlega góð aðstaða sem er sniðin að stærri bílum, trukkum og rútum, aðkomu- og akstursrýmið er einstaklega rúmgott og auðvelt er að keyra í gegnum stöðina sem tryggir enn betri og skilvirkari þjónustu.

Við þökkum kærlega fyrir skilninginn á þessum breytingum og hlökkum til að taka vel á móti ykkur á Suðurhellu!"

VILT ÞÚ FÁ ÁMINNGU?

Ef þú vilt láta minna þig á næstu skoðun þá er tilvalið að skrá sig á póstlista Aðalskoðunar.