Vanrækslugjald
Samkvæmt umferðarlögum leggst vanrækslugjald á ökutæki sem ekki hafa verið færð til aðal- eða endurskoðunar á réttum tíma. Gjaldið er innheimt af Samgöngustofu.
Hvernig reiknast fresturinn?
Síðasti tölustafur bílnúmersins ákvarðar skoðunarmánuðinn — og hvenær gjaldið leggst á.
Endastafur ræður mánuði
Síðasti tölustafur bílnúmersins ákvarðar í hvaða mánuði á að færa ökutækið til skoðunar.
Tveir mánuðir til viðbótar
Þú hefur tvo mánuði til viðbótar við skoðunarmánuðinn til að ljúka skoðun án gjalds.
Gjaldið leggst á
Sé ökutækið óskoðað að frestinum loknum leggst vanrækslugjald á 1. dag næsta mánaðar.
Skoðunarfrestur
| Endastafur | Skoðunarmánuður | Vanrækslugjald |
|---|---|---|
| 1 | Janúar | Apríl |
| 2 | Febrúar | Maí |
| 3 | Mars | Júní |
| 4 | Apríl | Júlí |
| 5 | Maí | Ágúst |
| 6 | Júní | September |
| 7 | Júlí | Október |
| 8 | Ágúst | Nóvember |
| 9 | September | Desember |
| 0 | Október | Janúar |
Aðrar reglur gilda um fornbíla, bifhjól og ferðavagna. Ökutæki í endurskoðun fá mánaðar frest til viðbótar áður en vanrækslugjald leggst á.
Hvað er vanrækslugjald?
Samkvæmt umferðarlögum leggst vanrækslugjald á ökutæki sem ekki hafa verið færð til aðal- eða endurskoðunar á réttum tíma. Gjaldið er innheimt af Samgöngustofu.
Vanrækslugjald vegna allra ökutækja nema tiltekinna flokka hópbifreiða, vörubifreiða og eftirvagna.
Gjald vegna tiltekinna flokka hópbifreiða, vörubifreiða og eftirvagna.
Forðastu vanrækslugjaldið
Skráðu þig og við minnum þig á þegar skoðunarmánuðurinn nálgast — Framvísaðu tölvupóstinum í afgreiðslunni og fáðu 15% afslátt!
Algengar spurningar
Vanrækslugjald er lagt á skráðan eiganda eða umráðamann ökutækis ef ökutækið er ekki fært til skoðunar innan tilskilins frests.
Vanrækslugjald er 20.000 kr. fyrir almenn ökutæki og 40.000 kr. fyrir tiltekna flokka hópbifreiða, vörubifreiða og eftirvagna.
Ef ökutækið er fært til skoðunar eða skráð úr umferð innan mánaðar frá álagningu gjaldsins er veittur 50% afsláttur af vanrækslugjaldinu.
Skoðunarmánuður ökutækisins ræðst af síðasta tölustaf fastanúmersins og skoðunarmiðanum á númeraplötunni. Á skoðunarmiðanum kemur fram ártalið sem ökutækið á að fara í skoðun.
Síðasti tölustafur fastanúmersins ákvarðar í hvaða mánuði skoðunin á að fara fram og að þeim mánuði loknum hefur eigandi tvo mánuði til viðbótar til að færa ökutækið í skoðun áður en vanrækslugjald leggst á.
Til að forðast vanrækslugjald er mikilvægt að færa ökutækið til skoðunar innan tilskilins frests. Þú getur einnig skráð þig í áminningarþjónustu Aðalskoðunar og fengið tölvupóst þegar skoðunarfrestur nálgast, þannig að minni líkur eru á að skoðunin gleymist.
Fá áminninguNei, vanrækslugjald fæst ekki endurgreitt þótt ökutækið sé fært til skoðunar eftir að gjaldið hefur verið greitt.
Hins vegar fæst 50% afsláttur af vanrækslugjaldinu ef ökutækið er fært til skoðunar innan mánaðar frá því að gjaldið var lagt á.
Hægt er að skrá ökutæki tímabundið úr umferð með því að skila númeraplötunum til Aðalskoðunar, Samgöngustofu eða næstu faggildu skoðunarstöðvar. Númeraplöturnar eru þá settar í geymslu þar til þær eru sóttar aftur og ökutækið skráð á ný í umferð. Ef ekki er hægt að fjarlægja númeraplöturnar er einnig hægt að skrá ökutækið úr umferð með sérstökum „Notkun bönnuð“-miða. Óheimilt er að nota ökutæki sem hefur verið skráð úr umferð.
Ökutækið þarf að vera með gilda ábyrgðartryggingu. Að því loknu er hægt að sækja númeraplöturnar þangað sem þær voru settar í geymslu. Skráður eigandi eða umboðsmaður hans þarf að sækja plöturnar.
Ef skoðunarfrestur ökutækisins er liðinn er veitt tímabundin akstursheimild til að færa ökutækið í skoðun. Ef númeraplöturnar voru afklipptar af lögreglu eða ökutækið tekið úr umferð vegna tjóns er ekki heimilt að afhenda plöturnar aftur fyrr en ökutækið hefur staðist tilskilda skoðun.

