Fara í efni

Fyrirtækjaþjónusta

Ef þið eruð með yfir 20 ökutæki þá komum við til ykkar og spörum ykkur því tíma, fyrirhöfn og kostnað. Fyrir fólksbíla allt að 3.5 tonnum.

Við komum til ykkar

Við komum á staðinn og skoðum allan bílaflotann hjá ykkur — hagkvæm og þægileg lausn fyrir fyrirtæki með marga bíla.

Tímasparnaður

Sparið ykkur tíma, fyrirhöfn og kostnað. Starfsmenn koma með bílinn í upphafi vinnudags og sækja lyklana í lok dags — ekki seinna en kl. 16:30.

Þægindi fyrir starfsfólk

Bjóðið starfsmönnum bifreiðaskoðun á vinnutíma og léttið þannig á erindum sem annars þarf að sinna utan vinnu. Skoðunarskýrslan berst í tölvupósti.

Hvernig virkar þetta?

Við bjóðum fyrirtækjum upp á þann möguleika að koma á staðinn og skoða bílaflotann. Einstaklega hentug þjónusta fyrir fyrirtæki sem hafa fjölda bifreiða að ráða, sem og þau fyrirtæki sem sjá hag sinn í að bjóða starfsmönnum upp á bifreiðaskoðun á vinnutíma.

Það eina sem starfsmenn gera er að koma með bílinn í upphafi vinnudags og sækja lyklana í lok dags, ekki seinna en kl. 16:30. Við sendum svo skoðunarskýrsluna með tölvupósti.

  • Lágmarksfjöldi: 20 bifreiðar.
  • Fólksbílar allt að 3,5 tonn.
  • Hentar einnig bílasölum og bílaleigum.
Fyrirtækjaþjónusta Aðalskoðunar — skoðun á staðnum

Sendu fyrirspurn

Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar ykkar bílaflota.

Sendu fyrirspurn

Engar tímapantanir

Renndu við

Algengar spurningar

Fyrirtækjaþjónustan hentar fyrirtækjum með marga bíla — við komum á staðinn og skoðum bílaflotann í heild eða að hluta. Þannig sparast tími þar sem ekki þarf að flytja hvert ökutæki sérstaklega í skoðun, og rask á daglegum rekstri minnkar.

Sendu tölvupóst á adalskodun@adalskodun.is til að panta. Lágmark er 20 ökutæki sem fara í skoðun.

Hafa samband

Aðalskoðun kemur með færanlega skoðunarstöð til fyrirtækisins. Starfsfólk afhendir lykla að ökutækjunum sem á að skoða og fær þá aftur að skoðun lokinni. Skoðunarskýrslur berast síðan í tölvupósti.

Þjónustan hentar fyrirtækjum með stærri bílaflota (a.m.k. 20 ökutæki) eða fyrirtækjum sem vilja bjóða starfsfólki upp á bifreiðaskoðun á vinnutíma.

Til að setja upp færanlegu skoðunarstöðina þarf um 30x10 metra pláss og aðgang að rafmagni.

Þjónustan er fyrir fólksbíla og önnur ökutæki allt að 3,5 tonnum. Stærri ökutæki, t.d. vörubílar eða jeppar yfir 3,5 tonnum, falla ekki undir hana.

Fleiri spurningar?

Hafðu samband við okkur ef þú hefur fleiri spurningar.

Hafa samband