Fara í efni
Bifreiðaskoðun hjá Aðalskoðun

Bifreiðaskoðun

Við hjá Aðalskoðun sérhæfum okkur í skyldu- og ástandsskoðun allra ökutækja - Allt frá léttum bifhjólum til stórra flutningabifreiða.

Endurskoðun

Ef að ökutæki stenst ekki aðalskoðun og fær athugasemdir þarf að mæta með ökutækið í endurskoðun. Eigandi ökutækisins hefur þá venjulega frest út næsta mánuð til þess að lagfæra það sem er ábótavant við ökutækið.

Vanrækslugjald

Ef að ökutæki er ekki fært til skoðunar innan þeirra tímamarka sem gefin eru leggst vanrækslugjald á ökutækið og bíllinn er dæmdur ólöglegur á götunni.

Léttskoðun

Léttskoðun er fljótleg ástandsskoðun fyrir þá sem eru að kaupa eða selja notaðan bíl. Farið er yfir helstu öryggisatriði svo þú vitir í hvernig ástandi bíllinn er.

Breytingaskoðun

Þegar breytingar hafa verið gerðar á ökutæki þá þarf að staðfesta að breytingin sé í samræmi við lögbundnar kröfur og öryggisstaðla. Þetta getur átt við um breytingar á notkunarflokki, ökutækjaflokki, farþegafjölda, hreyfli, tengibúnaði, grind, ásum eða yfirbyggingu.

Sérskoðun

Sérskoðun er fyrir ökutæki sem hefur verið breytt verulega frá upprunalegri útfærslu, til dæmis vegna hækkunar, stærri hjóla, breyttrar fjöðrunar, stýrisbúnaðar, hemla eða grindarbreytinga.

Engar tímapantanir

Renndu við

Hvenær á bíllinn að fara í skoðun?

Skoðunarmánuður ökutækis ræðst af síðasta tölustaf á númeraplötunni. Þú mátt þó mæta með bílinn í skoðun allt að 6 mánuðum fyrir skoðunarmánuðinn þinn.

Fáðu áminningu á réttum tíma

Skráðu þig og við minnum þig á þegar skoðunarmánuðurinn nálgast og þú nýtur 15% afsláttar af næstu skoðun.

október

Algengar spurningar

Öll skráningarskyld ökutæki og eftirvagnar þurfa reglubundna aðalskoðun samkvæmt reglum Samgöngustofu — þar á meðal:

  • fólksbílar
  • sendibílar og jeppar
  • húsbílar og hjólhýsi
  • eftirvagnar
  • bifhjól og létt bifhjól
  • vörubílar og rútur

Nýr fólksbíll fer fyrst í skoðun fjórum árum eftir nýskráningu, síðan á tveggja ára fresti til átta ára aldurs og árlega eftir það.

Nýr fólksbíll fer fyrst í aðalskoðun fjórum árum eftir nýskráningu, síðan á tveggja ára fresti þar til hann er átta ára og árlega eftir það. Skoðunarmánuðurinn ræðst af síðasta tölustaf skráningarnúmersins og ártalið kemur fram á skoðunarmiðanum.

Fáðu áminningu

Bifreiðaskoðun tekur að jafnaði 10–20 mínútur, eftir tegund ökutækis og álagi á stöðinni. Stærri eða sérhæfð ökutæki taka lengri tíma, um 30 mínútur.

Þegar ökutæki ber einkanúmer segir endastafur númersins til um skoðunarmánuð ökutækisins.
Tölustafur: Skoðunarmánuðurinn samsvarar tölustafnum.
Bókstafur: Ef einkanúmerið endar á bókstaf er skoðunarmánuðurinn maí.
Eins og með önnur ökutæki er heimilt að færa ökutæki í skoðun allt að 6 mánuðum fyrir skoðunarmánuð, að því gefnu að skoðunin fari fram innan sama almanaksárs.
Þú getur séð skoðunarmánuð ökutækja þinna á Mínum síðum á island.is.

Fleiri spurningar?

Hafðu samband við okkur ef þú hefur fleiri spurningar.

Hafa samband