Fara í efni

Níu lifehacks til að láta bílinn lúkka

Notaðu spritt á rúðuþurrkurnar

Það er fátt meira pirrandi en rúðuþurrkur sem káma út rúðuna í staðinn fyrir að hreinsa. En ef þú ferð með sprittaða tusku á þessar elskur svona einu sinni í viku ertu í mjög góðum málum. Þökk sé Covid hefur aðgengi að spritti verið mjög gott undanfarin misseri.

Slímaðu erfiðu staðina

Hver kannast ekki við rykið og viðbjóðinn sem safnast fyrir á skrítnum stöðum eins og við gírskiptinguna og innan í mælaborðinu? Slímið sem krakkarnir elska að leika sér með er fullkomið til að pota í þessa erfiðu staði og rífur óhreinindin upp með sér.

Notaðu sköfuna á dýrahárin

Loðnu ferfætlingarnir sem ferðast stundum með okkur eiga það til að fara nokkuð harkalega úr hárum, sem er hvimleitt fyrir farþega með ofnæmi, auk þess að festast við fatnað. En örvæntið ekki, einfaldasta leiðin til að losna við dýrahárin er gamla góða skafan. Spreyjaðu bara fyrst örlitlum vatnsúða yfir áklæðið og renndu svo yfir með sköfunni.

Settu sokk í glasahaldarann

Glasahaldarinn er hannaður til að koma í veg fyrir að það hellist niður, en enginn er fullkominn. Af og til lendir þú í því að keyra yfir ójöfnur og einn eða tveir dropar af kaffi, orkudrykk eða appelsíni slettast upp úr. Með tímanum getur glasahaldarinn því orðið virkilega klístraður og ógeðslegur. Besta leiðin til að þrífa hann er að klæða kaffibolla í gamlan (hreinan) sokk sem þú bleytir að utan með hreinsispreyi. Þú setur hann svo í glasahaldarann, leyfir honum að sitja þar í nokkrar mínútur og nuddar honum svo ofan í til að skrúbba síðustu óhreinindin í burtu.

Byrjaðu efst og færðu þig niður

Ef þú byrjar á því að ryksuga sætin verða þau aftur öll úti í kuski eftir að þú þrífur rúður og hurðir. Byrjaðu að þrífa efstu parta bílsins og færðu þig svo neðar og neðar.

Farðu með hárblásarann á stuðarann

Þér fannst kannski sniðugt að setja þennan „meistari á ferð” límmiða á stuðarann þegar þú varst 18 ára, en hann er fyrir löngu orðinn hallærislegur og fáránlega erfitt að ná honum af. Þá kemur hárblásarinn til bjargar, en heitur blástur í smá stund er nóg til að leysa upp límið þannig að hægt sé að fjarlægja æskubrekið.

Settu tannkrem á framljósin

Ef þú hefur átt bíl lengi fara ljósin að verða óskýr eftir því sem óhreinindin hrannast upp. Prófaðu næst þegar þú ert búinn að tannbursta þig að fara með heita tusku og tannkrem á framljósin, og þau verða aftur eins og ný.

Sturtaðu matarsóda til að losna við lykt

Eru skrítnir blettir sem lykta í áklæðinu? Sturtaðu matarsóda á vandamálið og leyfðu honum að malla þar í nokkra klukkutíma. Þegar þú ryksugar sódann af er lyktin á bak og burt.

Makaðu ólífuolíu á mælaborðið

Byrjaðu á því að hreinsa allt ryk og óhreinindi. Settu svo smávegis af ólífuolíu í hreina tusku og nuddaðu yfir allt mælaborðið, sem gefur því ferskan gljáa.

Deila:FacebookX

Fleiri greinar

6 atriði sem munu hjálpa þér við undirbúning fyrir veturinn
Fróðleikur

6 atriði sem munu hjálpa þér við undirbúning fyrir veturinn

Er bíllinn þinn klár í veturinn? Við höfum tekið saman stuttan gátlista með nokkrum atriðum sem við mælum með að fara yfir áður en kuldinn og snjórinn tekur yfir.

Lesa meira →
Bílar og bíómyndir – 10 þekktir bílar úr kvikmyndaheiminum
Fróðleikur

Bílar og bíómyndir – 10 þekktir bílar úr kvikmyndaheiminum

Bílarnir sem hafa komið við sögu í kvikmyndaheiminum eru jafn ólíkir eins og þeir eru margir. Hér höfum við tekið saman 10 ólíka bíla sem hafa vakið mikla athygli.

Lesa meira →
Ferðalagið hefst í bílnum – 7 góð ráð við undirbúning
Fróðleikur

Ferðalagið hefst í bílnum – 7 góð ráð við undirbúning

Við hjá Aðalskoðun viljum að viðskiptavinir okkar séu ávallt reiðubúnir til ferðalaga á bílnum sínum. Hér eru 7 góð ráð við undirbúning ferðalags.

Lesa meira →