Fara í efni

Hvaða reglur gilda um bifreiðaskoðun?

Hvenær má fara með bíl í skoðun? Síðasti tölustafur á skráningarnúmeri bifreiðar segir til um í hvaða mánuði skal færa hana til aðalskoðunar. Þannig að ef númerið endar á þremur á að fara með bílinn í skoðun í mars, fjórir táknar apríl og þannig koll af kolli. Ef númerið endar á núll skal fara með bifreiðina í aðalskoðun í október.

Þetta gildir um öll ökutæki nema dráttarvélar og torfærutæki. Hvað þá með einkanúmer? Ef einkanúmerið endar á tölustaf segir það til um mánuðinn. Ef einkanúmer endar hins vegar á bókstaf skal færa bílinn í skoðun í maí. Ef ekki næst að færa bíl til skoðunar í skoðunarmánuði samkvæmt númeri skal koma honum í skoðun í síðasta lagi fyrir lok annars mánaðar þaðan í frá. Eigandi bílsins ber ábyrgð á að færa hann til skoðunar. Vanrækslugjald er lagt á óskoðuð ökutæki.

Aðalskoðun árlega

Eftirfarandi gerðir ökutækja skal færa árlega til aðalskoðunar: vörubifreiðar, hópbifreiðar, leigubíla, eðalvagna, sjúkraflutningabifreiðar, eftirvagna með leyfða heildarþyngd meiri en 3,5 tonn og bifreiðar til neyðaraksturs. Hins vegar eru eftirfarandi ökutæki ekki skoðuð árlega lengur: sendibílar, bifreiðar sem ætlaðar eru til leigu í atvinnuskyni án ökumanns, kennslubifreiðar og létt bifhjól.

Endurskoðun bifreiða

Almennt er veittur frestur til endurskoðunar til loka næsta mánaðar. Ef farið er með bíl í skoðun innan tilskilins frests felur endurskoðun einungis í sér skoðun á þeim atriðum sem athugasemd var gerð við í fyrri skoðun. En ef fresturinn er runninn út þarf að skoða ökutækið aftur í heild með tilheyrandi skoðunargjaldi fyrir eiganda bíls. Ekki er lengur hægt að framlengja frest á endurskoðun.

Það borgar sig því að hafa skoðunarmálin á hreinu og mæta tímanlega í skoðun hjá Aðalskoðun!

Nánari upplýsingar um reglur varðandi skoðun ökutækja má finna á vef Samgöngustofu.

Deila:FacebookX

Fleiri greinar

6 atriði sem munu hjálpa þér við undirbúning fyrir veturinn
Fróðleikur

6 atriði sem munu hjálpa þér við undirbúning fyrir veturinn

Er bíllinn þinn klár í veturinn? Við höfum tekið saman stuttan gátlista með nokkrum atriðum sem við mælum með að fara yfir áður en kuldinn og snjórinn tekur yfir.

Lesa meira →
Bílar og bíómyndir – 10 þekktir bílar úr kvikmyndaheiminum
Fróðleikur

Bílar og bíómyndir – 10 þekktir bílar úr kvikmyndaheiminum

Bílarnir sem hafa komið við sögu í kvikmyndaheiminum eru jafn ólíkir eins og þeir eru margir. Hér höfum við tekið saman 10 ólíka bíla sem hafa vakið mikla athygli.

Lesa meira →
Ferðalagið hefst í bílnum – 7 góð ráð við undirbúning
Fróðleikur

Ferðalagið hefst í bílnum – 7 góð ráð við undirbúning

Við hjá Aðalskoðun viljum að viðskiptavinir okkar séu ávallt reiðubúnir til ferðalaga á bílnum sínum. Hér eru 7 góð ráð við undirbúning ferðalags.

Lesa meira →