Fara í efni

Er fellihýsið/hjólhýsið klárt í sumarið?

Með hækkandi sól er kominn tími til að taka fellihýsin og hjólhýsin úr geymslu eftir veturinn. En áður en þú heldur út á vit ævintýranna eru nokkur atriði sem þú ættir að huga að.

Hér er listi yfir það sem gæti þurft að gera:

Skoða heildarástand felli-/hjólhýsisins

  • Athugaðu hvort það séu sprungur, skemmdir eða lekar á yfirborði, sérstaklega á þaki, gluggum og hurðum.
  • Athugaðu ummerki um vatnsskemmdir, myglu eða meindýr.
  • Skoðaðu dekk og öxla og skiptu um ef þau eru slitin eða skemmd.

Eldhús og gastæki

  • Skoðaðu gaskerfi, gasstilli, rör og tengingar og tryggðu að allt sé öruggt og í góðu standi.
  • Skoðaðu eldunartæki, ísskápinn, ofninn og önnur matartengd tæki og hreinsaðu ef þörf krefur.
  • Skoðaðu skápa og geymslurými og sjáðu til þess að allar festingar séu í lagi.

Raftæki og rafkerfi

  • Athugaðu raftengingar, rafbúnað og tæki og vertu viss um að þau virki rétt.

Vatnslagnir

  • Skoðaðu vatnslagnir, blöndunartæki, sturtu og salerni og tryggðu að ekkert leki.
  • Skoðaðu vatnsþrýsting, vatnshitara og vatnsdælu.
  • Athugaðu frárennsliskerfið, svo sem niðurföll, tanka og geymslusvæði fyrir vatn, og hreinsaðu eftir þörfum.

Loftræsting

  • Prófaðu reyk- og kolmónoxíðskynjara og skiptu um rafhlöður ef þörf krefur.
  • Skoðaðu loftsíur og loftop.
Deila:FacebookX

Fleiri greinar

6 atriði sem munu hjálpa þér við undirbúning fyrir veturinn
Fróðleikur

6 atriði sem munu hjálpa þér við undirbúning fyrir veturinn

Er bíllinn þinn klár í veturinn? Við höfum tekið saman stuttan gátlista með nokkrum atriðum sem við mælum með að fara yfir áður en kuldinn og snjórinn tekur yfir.

Lesa meira →
Bílar og bíómyndir – 10 þekktir bílar úr kvikmyndaheiminum
Fróðleikur

Bílar og bíómyndir – 10 þekktir bílar úr kvikmyndaheiminum

Bílarnir sem hafa komið við sögu í kvikmyndaheiminum eru jafn ólíkir eins og þeir eru margir. Hér höfum við tekið saman 10 ólíka bíla sem hafa vakið mikla athygli.

Lesa meira →
Ferðalagið hefst í bílnum – 7 góð ráð við undirbúning
Fróðleikur

Ferðalagið hefst í bílnum – 7 góð ráð við undirbúning

Við hjá Aðalskoðun viljum að viðskiptavinir okkar séu ávallt reiðubúnir til ferðalaga á bílnum sínum. Hér eru 7 góð ráð við undirbúning ferðalags.

Lesa meira →