Common questions
Here you'll find answers to the most common questions about inspections, bookings and Aðalskoðun's services.
General
Skoðunarmánuður ökutækis ræðst af síðasta tölustaf skráningarnúmersins — til dæmis fer bíll með endastafinn 1 í skoðun í janúar, 2 í febrúar og svo framvegis (0 = október). Þú hefur tvo mánuði til viðbótar til að mæta án þess að vanrækslugjald leggist á. Ekki þarf að panta tíma hjá Aðalskoðun.
About the neglect feeNý ökutæki fara fyrst í skoðun fjórum árum eftir skráningarskoðun, síðan á tveggja ára fresti og loks árlega eftir aldri bílsins. Skoðunartíminn miðast við ártalið á skoðunarmiðanum og síðasta tölustaf skráningarnúmersins.
Aðalskoðun á fólksbíl kostar 18.490 kr. Verð fyrir önnur ökutæki — t.d. sendibíla, húsbíla og bifhjól — má sjá í verðskrá.
See pricingNei. Á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Selfossi er opið alla virka daga kl. 8–16 og engin tímabókun nauðsynleg. Á landsbyggðinni eru skoðanir ákveðna daga í mánuði og þar þarf að bóka fyrir fram.
Find a stationÍ bifreiðaskoðun er öryggi og ástand ökutækis yfirfarið — meðal annars ljósabúnaður, hemlar, stýri, fjöðrun, dekk, undirvagn og útblástur. Einnig er mengun mæld og öryggisbúnaður á borð við belti og hurðir skoðaður. Skoðunin miðast alltaf við ástand bílsins á skoðunardegi.
Endurskoðun er veitt þegar skoðun leiðir í ljós atriði sem uppfylla ekki öryggis- eða ástandskröfur. Þá þarf að laga atriðin og mæta aftur í skoðun innan tilskilins frests.
Algengustu ástæður endurskoðunar:
- slitnar eða ójafnar bremsur
- slit í stýri eða fjöðrun
- skemmd dekk
- gallar í ljósum eða rafbúnaði
- ryð eða skemmdir í undirvagni
- ótryggar festingar
Ökutækið fær frest til loka næsta mánaðar til að lagfæra þau atriði sem sett var út á og mæta í endurskoðun, þar sem eingöngu er farið yfir þau atriði sem áður var sett út á. Þegar þau standast fær ökutækið fulla skoðun.
Fresturinn er til loka næsta mánaðar eftir upphaflegu skoðunina — t.d. gefst tími fram í mars ef skoðunin var í febrúar. Innan þess tíma þarf að laga þau atriði sem sett var út á og mæta í endurskoðun.
Nei, skoðun þarf að fara fram í þeim mánuði sem síðasti tölustafur bílnúmersins vísar til, með tveggja mánaða viðbótarfresti áður en vanrækslugjald leggst á. Hægt er að komast hjá gjaldinu með því að skrá bílinn tímabundið úr umferð.
Já. Sé fresturinn á endurskoðun að renna út má senda tölvupóst á adalskodun@adalskodun.is með fastanúmeri ökutækis og óska eftir framlengingu. Þá er veittur frestur til loka næsta mánaðar.
Vehicle inspection
Öll skráningarskyld ökutæki og eftirvagnar þurfa reglubundna aðalskoðun samkvæmt reglum Samgöngustofu — þar á meðal:
- fólksbílar
- sendibílar og jeppar
- húsbílar og hjólhýsi
- eftirvagnar
- bifhjól og létt bifhjól
- vörubílar og rútur
Nýr fólksbíll fer fyrst í skoðun fjórum árum eftir nýskráningu, síðan á tveggja ára fresti til átta ára aldurs og árlega eftir það.
Nýr fólksbíll fer fyrst í aðalskoðun fjórum árum eftir nýskráningu, síðan á tveggja ára fresti þar til hann er átta ára og árlega eftir það. Skoðunarmánuðurinn ræðst af síðasta tölustaf skráningarnúmersins og ártalið kemur fram á skoðunarmiðanum.
Get a reminderBifreiðaskoðun tekur að jafnaði 10–20 mínútur, eftir tegund ökutækis og álagi á stöðinni. Stærri eða sérhæfð ökutæki taka lengri tíma, um 30 mínútur.
Ökutæki með einkanúmer á að koma í skoðun í maí. Tveggja mánaða viðbótarfrestur gildir áður en vanrækslugjald leggst á.
Inspection stations
Aðalskoðun Suðurhellu, Hjallahrauni og Grjóthálsi eru opnar yfir hádegi. Skoðunarstöð Skeifunnar, Kópavogs og Selfoss er lokuð milli kl. 12–12:30 og í Reykjanesbæ kl. 12:30–13.
Nei, skoðunarstöðvar Aðalskoðunar eru lokaðar um helgar.
Hægt er að bóka tíma í skoðun út á landi með því að hringja í síma 590 6900. Fyrir skoðun á Ólafsfirði er einnig hægt að hringja í síma 466 2194 og fyrir skoðun á Reyðarfirði er einnig hægt að hringja í síma 474 1453.
Find a stationJá. Þú getur farið með ökutækið í skoðun á hvaða skoðunarstöð Aðalskoðunar sem er, óháð því hvar það var skoðað síðast. Skoðunarsaga ökutækisins er skráð á ökutækið sjálft og fylgir því milli stöðva.
Nei, ekki allar stöðvar hafa aðstöðu til að skoða stærri ökutæki. Skoðun á vörubílum, hópbifreiðum og öðrum stærri ökutækjum er í boði á eftirfarandi stöðvum:
- Suðurhella 9, Hafnarfirði — allar gerðir ökutækja, þar á meðal trukkar og rútur.
- Hjallahraun 4, Hafnarfirði — farþegabílar frá 3.500–7.500 kg, fellihýsi og hjólhýsi.
- Grjótháls 10, Reykjavík — farþegabílar frá 3.500–7.500 kg, fellihýsi og hjólhýsi.
- Njarðarbraut 11a, Reykjanesbæ — farþegabílar frá 3.500–7.500 kg, fellihýsi og hjólhýsi.
- Eyravegur 51, Selfossi — farþegabílar frá 3.500–7.500 kg, fellihýsi og hjólhýsi.
Light inspection
Léttskoðun er skoðun fyrir þá sem eru að kaupa eða selja ökutæki og vilja fá óháð mat á ástandi þess fyrir kaupin.
Ökutæki sem eru 6 tonn eða léttari, yngri en 10 ára og hafa verið ekin innan við 200.000 km geta farið í léttskoðun.
Nei, á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Selfossi er engin tímabókun — mættu bara á næstu skoðunarstöð. Út á landi þarf hins vegar að bóka tíma fyrirfram.
Find a stationLéttskoðun kostar 13.990 kr.
About light inspectionÍ léttskoðun er farið yfir stýrisbúnað, aflrás, hemlabúnað og ljósabúnað.
Corporate service
Fyrirtækjaþjónustan hentar fyrirtækjum með marga bíla — við komum á staðinn og skoðum bílaflotann í heild eða að hluta. Þannig sparast tími þar sem ekki þarf að flytja hvert ökutæki sérstaklega í skoðun, og rask á daglegum rekstri minnkar.
Sendu tölvupóst á adalskodun@adalskodun.is til að panta. Lágmark er 20 ökutæki sem fara í skoðun.
Contact usAðalskoðun kemur með færanlega skoðunarstöð til fyrirtækisins. Starfsfólk afhendir lykla að ökutækjunum sem á að skoða og fær þá aftur að skoðun lokinni. Skoðunarskýrslur berast síðan í tölvupósti.
Þjónustan hentar fyrirtækjum með stærri bílaflota (a.m.k. 20 ökutæki) eða fyrirtækjum sem vilja bjóða starfsfólki upp á bifreiðaskoðun á vinnutíma.
Til að setja upp færanlegu skoðunarstöðina þarf um 30x10 metra pláss og aðgang að rafmagni.
Þjónustan er fyrir fólksbíla og önnur ökutæki allt að 3,5 tonnum. Stærri ökutæki, t.d. vörubílar eða jeppar yfir 3,5 tonnum, falla ekki undir hana.
Get a reminder
Já, þjónustan er gjaldfrjáls. Þú skráir þig og færð sjálfkrafa tölvupóst þegar skoðunarfrestur bílsins nálgast.
Þú færð eina áminningu um 30 dögum áður en skoðunarfresturinn rennur út, og eina ítrekun 14 dögum áður ef þú hefur ekki enn komið í skoðun.
Já, þú getur afskráð þig hvenær sem er — annaðhvort með afskráningarhlekknum neðst í tölvupóstinum eða með því að hafa samband við okkur.
Þegar þú skráir þig í áminningarþjónustuna færðu afsláttarkóða sem gildir fyrir aðalskoðun. Afslátturinn er 15% og má nýta einu sinni á ári.
Pricing
Aðalskoðun fyrir fólksbíla <3.500 kg kostar 18.490 kr.
Endurskoðun kostar 2.590 kr. Fyrir ökutæki þyngri en 7.500 kg kostar endurskoðun 9.290 kr.
Já, virðisaukaskatturinn er alltaf innifalinn í verðinu.
Já, hjá Aðalskoðun er hægt að greiða með korti.
Já, fyrirtæki geta óskað eftir að stofna til reikningsviðskipta hjá Aðalskoðun. Með því geta fyrirtæki fengið fastan afslátt af skoðunum á ökutækjum sínum og einfaldari umsýslu með sameiginlegri reikningsfærslu.
Corporate serviceJá, Aðalskoðun býður upp á reikningsviðskipti. Hægt er að óska eftir því að vera skráður í reikningsviðskipti með því að senda tölvupóst á adalskodun@adalskodun.is.
Já, afslættir og sértilboð geta verið í boði á ákveðnum tímabilum. Við hvetjum þig til að fylgjast með á heimasíðu og samfélagsmiðlum Aðalskoðunar til að sjá hvaða tilboð eru í gangi hverju sinni.
Neglect fee
Vanrækslugjald er lagt á skráðan eiganda eða umráðamann ökutækis ef ökutækið er ekki fært til skoðunar innan tilskilins frests.
Vanrækslugjald er 20.000 kr. fyrir almenn ökutæki og 40.000 kr. fyrir tiltekna flokka hópbifreiða, vörubifreiða og eftirvagna.
Ef ökutækið er fært til skoðunar eða skráð úr umferð innan mánaðar frá álagningu gjaldsins er veittur 50% afsláttur af vanrækslugjaldinu.
Skoðunarmánuður ökutækisins ræðst af síðasta tölustaf fastanúmersins og skoðunarmiðanum á númeraplötunni. Á skoðunarmiðanum kemur fram ártalið sem ökutækið á að fara í skoðun.
Síðasti tölustafur fastanúmersins ákvarðar í hvaða mánuði skoðunin á að fara fram og að þeim mánuði loknum hefur eigandi tvo mánuði til viðbótar til að færa ökutækið í skoðun áður en vanrækslugjald leggst á.
Til að forðast vanrækslugjald er mikilvægt að færa ökutækið til skoðunar innan tilskilins frests. Þú getur einnig skráð þig í áminningarþjónustu Aðalskoðunar og fengið tölvupóst þegar skoðunarfrestur nálgast, þannig að minni líkur eru á að skoðunin gleymist.
Get a reminderNei, vanrækslugjald fæst ekki endurgreitt þótt ökutækið sé fært til skoðunar eftir að gjaldið hefur verið greitt.
Hins vegar fæst 50% afsláttur af vanrækslugjaldinu ef ökutækið er fært til skoðunar innan mánaðar frá því að gjaldið var lagt á.
Hægt er að skrá ökutæki tímabundið úr umferð með því að skila númeraplötunum til Aðalskoðunar, Samgöngustofu eða næstu faggildu skoðunarstöðvar. Númeraplöturnar eru þá settar í geymslu þar til þær eru sóttar aftur og ökutækið skráð á ný í umferð. Ef ekki er hægt að fjarlægja númeraplöturnar er einnig hægt að skrá ökutækið úr umferð með sérstökum „Notkun bönnuð“-miða. Óheimilt er að nota ökutæki sem hefur verið skráð úr umferð.
Ökutækið þarf að vera með gilda ábyrgðartryggingu. Að því loknu er hægt að sækja númeraplöturnar þangað sem þær voru settar í geymslu. Skráður eigandi eða umboðsmaður hans þarf að sækja plöturnar.
Ef skoðunarfrestur ökutækisins er liðinn er veitt tímabundin akstursheimild til að færa ökutækið í skoðun. Ef númeraplöturnar voru afklipptar af lögreglu eða ökutækið tekið úr umferð vegna tjóns er ekki heimilt að afhenda plöturnar aftur fyrr en ökutækið hefur staðist tilskilda skoðun.
Careers
Þú getur sent okkur umsókn hvenær sem er á síðunni Atvinnuumsókn. Þar fyllir þú út reitina og getur hengt við ferilskrá (PDF, DOC eða DOCX, að hámarki 5 MB). Við förum yfir umsóknina og höfum samband innan tveggja vikna.
Apply for a jobTil að starfa sem skoðunarmaður þarf yfirleitt tæknimenntun á sviði bifvélavirkjunar, bifreiðasmíði eða vélvirkjunar. Kröfur til annarra starfa ráðast af starfslýsingu hverju sinni.
Já. Allir starfsmenn í skoðunarstörfum fá ítarlega þjálfun í skoðunarbúnaði og skoðunaraðferðum. Við leggjum ríka áherslu á fagmennsku, endurmenntun og stöðuga þróun starfsfólks.
Við gefum okkur tvær vikur til að svara umsókninni. Ef að þú ert valin/n í viðtal höfum við samband við þig.
Apply for a jobAdvertising & Sponsorships
Með því að fylla út fyrirspurnina hér á síðunni og lýsa verkefninu þínu. Við yfirförum allar styrkbeiðnir og svörum innan tveggja vikna. Vinsamlegast tilgreindu hvaða félag eða samtök standa að baki beiðninni.
SponsorshipsAðalskoðun styrkir helstu íþróttasamtök, góðgerðarfélög, menningarviðburði og samfélagsverkefni víða um land. Við leggjum áherslu á verkefni sem nýtast samfélaginu og stuðla að bættum umhverfismálum eða heilsu.
For media
Vinsamlegast sendið allar fjölmiðlafyrirspurnir á adalskodun@adalskodun.is eða hringið í síma 590 6900. Við reynum að svara öllum fjölmiðlafyrirspurnum innan sólarhrings.
Já, myndefni og merki sem eru til niðurhals á þessari síðu má nota í tengslum við fréttaumfjöllun um Aðalskoðun. Vinsamlegast tilgreindu heimild þegar myndefni er notað.
