Aðalskoðun er faggild óháð skoðunarstofa sem sækir fram á öllum sviðum eftirlits. Við störfum á nokkrum eftirlitssviðum. Þau eru nú Ökutækjasvið, Matvælasvið og Markaðseftirlitssvið.
Hjá Aðalskoðun er hægt að fá alla skoðunarþjónustu fyrir ökutæki af öllum stærðum og gerðum. Jafnframt önnumst við alla þjónustu tengdri skráningu ökutækja svo sem móttöku eigendaskipta, meðhöndlun númera, nýskráningar og aðra skráningarþjónustu tengda ökutækjum.
Aðalskoðun annast einnig skoðanir fyrir vinnsluleyfishafa í sjávarútvegi og sinnt markaðseftirlit með rafföngum fyrir stjórnvöld undanfarin áratug.
Skoðunarstöðvar okkar á höfuðborgarsvæðinu fyrir ökutæki eru nú þrjár en jafnframt skoðum við með reglulegu millibili á þremur stöðum á landsbyggðinni, Grundarfirði, Ólafsfirði og Reyðarfirði.
Í janúar 2011 opnaði ný skoðunarstöð í Reykjanesbæ.
Sjá nánari upplýsingar undir liðnum „Þjónusta“