Aðalskoðun hf. er faggilt skoðunarstofa, óháð hagsmunaaðilum og sækir fram á öllum sviðum eftirlits. Fyrirtækið var stofnað þann 13. september 1994 af 22 einstaklingum sem sumir hverjir hafa unnið hjá fyrirtækinu frá upphafi og starfa þar enn í dag. Markmiðið með stofnun Aðalskoðunar var að setja á fót hlutlausa óháða skoðunarstofu á sviði skoðunar ökutækja. Skoðun ökutækja á vegum Aðalskoðunar hf. hófst í janúar 1995 og hefur því fyrirtækið starfað í 16 ár. Fleiri eftirlitssvið hafa síðan bæst við og sinnir Aðalskoðun í dag Markaðseftirliti með rafföngum fyrir stjórnvöld ásamt skoðunum ökutækja.
Eigendur Aðalskoðunar hf í dag eru félögin Veigur ehf. og Birta ehf. sem eru í eigu aðila tengdum Jafet S. Ólafssyni og Eyjólfi Árna Rafnssyni.