Markaðseftirlitssvið Aðalskoðunar annast eftirlit með rafföngum fyrir Mannvirkjastofnun en undir hana heyrir eftirlit með rafföngum sem við notkun eru varanlega tengd mannvirkjum, þ.e. skrúfuð eða boltuð föst eða tengd fastri raflögn í mannvirkjum.
Tilgangur eftirlits Aðalskoðunar á þessu sviði er að fylgjast með hvort rafföng sem heyra undir Mannvirkjastofnun og eru á markaði hér landi, uppfylli form- og öryggiskröfur.
Eftirlit með rafföngum sem fyrst og fremst eru ætluð neytendum og ekki eru varanlega tengd mannvirkjum er á hendi Neytendastofu.
Starfsmenn Markaðseftirlitssviðs eru tveir. Örn Guðmundsson tæknistjóri og Ólafur Hjörtur Magnsússon, skoðunarmaður.
Eðli málsins samkvæmt fara skoðanir fram hjá heildsölum og smásölum um allt land.
Beinir símar eru:
Örn GSM 660 8609
Ólafur Hjörtur GGSM 8988848
Markaðseftirlitssvið er faggilt skv. staðlinum ÍST EN ISO/IEC 17020 sem fjallar um skoðunarstofur af ýmsum gerðum.