Beint í efni vefsins


Vanrækslugjald

Vanrækslugjald 15.000 kr.er lagt á ökutæki og eftirvagna sem ekki hafa verið færð til skoðunar á réttum tíma.

Í reglugerð um skoðun ökutækja er kveðið á um að almennt eigi að færa ökutæki til skoðunar í þeim mánuði sem síðasti tölustafur í skráningamerki segir til um. Ökutæki og eftirvagnar með endastafinn 1 eiga að koma í janúar, endastafinn 2 í febrúar o.s.fr. Eigendur hafa tvo mánuði fram yfir réttan skoðunarmánuð áður en vanræsklugjaldið er álagt.

Á ökutæki með 1 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 1. apríl
Á ökutæki með 2 í endastaf skráningarmerkis leggst vanræsklugjald á 1. maí
Á ökutæki með 3 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 1. júní
o.s.frv.

1. ágúst leggst gjaldið á ökutæki með einkamerki sem ekki enda á tölustaf.

1. október leggst gjaldið á fornbifreiðar, húsbifreiðar, bifhjól, þar með talin fornbifjól og létt bifhjól, hjólhýsi (fellihýsi) og tjaldvagna.

Sýslumaðurinn í Bolungarvík hefur umsjón með álgningu og innheimtu gjaldsins sjá nánar á vef sýslumannsins í Bolungarvík.

Eyðublöð
Beiðni um niðurfellingu vanrækslugjalds
Beiðni um viðbótarfrest til að færa ökutæki til skoðunar.

Beiðni um afskráningu ökutækis

Beiðni um tímabundna skráningu ökutækis úr umferð.

Stuðningsleiðarkerfi
Stuðningsleiðarkerfi

Hér erum við!

Aðalskoðun hf,
Hjallahrauni 4, 220 Hafnafjörður
Sími 590 6900, Fax 590 6910