Hjá Aðalskoðun er hægt að láta lesa af þungaskattsmælum bifreiða.
Álestrartímabil bifreiða með ökumæla eru tvö á ári; 1. júní til 15. júní og 1. desember til 15. desember ár hvert. Lesið er af öllum bifreiðum með mæli sem eru yfir 10 tonn að heildarþyngd, nema hópbifreiðum. Einnig er lesið af bifreiðum sem eru í sérstökum notum, (á olíumerkjum) sem eru yfir 5 tonn að heildarþyngd og eftirvögnum yfir 10 tonn að heildarþyngd sem eru með mæli.