Beint í efni vefsins


Skráning ökutækja

Hvaða gögnum þarf að framvísa við umsókn um skráningu ökutækja ?

Ef notað ökutæki er flutt inn frá Evrópska efnahagssvæðinu(EES), USA eða Kanada er almennt nægilegt að framvísa farmbréfi og erlendu skráningarskírteini þar sem fram koma allar nauðsynlegar upplýsingar um ökutækið. Fyrir ný ökutæki og notuð ökutæki frá öðrum löndum en talin eru upp hér að ofan verður að framvísa ýtarlegum upplýsingum um gerð og búnað ökutækisins, sbr. viðkomandi upplýsingablað.

Þurfa framlögð skráningargögn að vera í frumriti eða nægja afrit ?

Erlent skráningarskírteini og upprunavottorð þurfa að vera í frumriti, hvort sem um ný eða notuð ökutæki er að ræða. Sé ekki framvísað frumriti skráningargagna, t.d. skráningarskírteinis, er skráningu hafnað. Farmbréf má vera í afriti.

Er unnt að nota framlögð gögn með einu ökutæki vegna skráningar á öðru ökutæki, þ.e. er heimilt að vísa í önnur gögn?

Almennt varða framlögð gögn aðeins eitt einstakt ökutæki og í þeim tilvikum er ekki unnt að nota gögnin fyrir annað ökutæki en gögnin varða. Ef gögn eru almenns eðlis og geta náð yfir fleiri ökutæki er heimilt að nota þau fyrir fleiri ökutæki, en ef ekki er um að ræða sama innflytjanda þarf samþykki þess er upphaflega lagði fram gögnin.

Hvaða reglur gilda um skráningu á aldri ökutækja ?

Almennt er fyrsti skráningardagur látinn gilda sem aldursviðmiðun ökutækja. Þegar ökutæki er skráð nýtt hér á landi er það nýskráningardagur hér á landi sem gildir sem fyrsti skráningardagur. Ef ökutæki er skráð notað hér á landi eru upplýsingar um fyrsta skráningardag ökutækis sóttar í erlent skráningarskírteini. Ef ekki eru til upplýsingar um fyrsta skráningardag notaðra ökutækja eru skráðar upplýsingar um framleiðsludag ökutækisins.

Stuðningsleiðarkerfi
Stuðningsleiðarkerfi

Hér erum við!

Aðalskoðun hf,
Hjallahrauni 4, 220 Hafnafjörður
Sími 590 6900, Fax 590 6910