Beint í efni vefsins


Skráningarmerki

Hvað þarf að gera til að taka út skráningarmerki sem voru afklippt af ökutæki?

Meginreglan er sú að það þarf að bæta úr þeim annmarka sem varð til þess að merkin voru afklippt. Ef afklippt var vegna skoðunar þarf að færa ökutæki til skoðunar áður en merkin eru afhent að nýju.

Hvað þarf að gera til að taka út skráningarmerki sem hafa verð lögð inn til geymslu af eiganda ?

Meginreglan er sú að leggja þarf fram staðfestingu á tryggingu og greiða áhvílandi opinber gjöld.

Geta þeir sem kaupa bifreiðar með kaupleigu fengið einkamerki ?

Já. Reglum um einkamerki hefur verið breytt þannig að nú er heimilt að skrá umráðamann ökutækis sem rétthafa að einkamerki, en þeir sem fjármagna ökutæki með rekstrarleigu / einkaleigu eru almennt skráðir sem umráðamenn ökutækja.

Hvað er lengi verið að framleiða skráningarmerki ?

Framleiðsla skráningarmerkja tekur 3 daga, þ.e. merkin eru komin úr framleiðslu á þriðja degi frá pöntunardegi. Það er hins vegar hægt að flýta framleiðslu skráningarmerka um einn dag, en fyrir það ber að greiða sérstakt flýtigjald. [Sé flýtigjald greitt við forskráningu eru skráningarmerkin tekin af lager og eru því tilbúin um leið og fastanúmeri er úthlutað.]

Hvar finn ég skráningarmerkin sem ég lagði inn / voru afklippt af lögreglu ?

Ef merkin hafa verið lögð inn eru þau geymd á þeim stað þar sem þau voru lögð inn. Ef merkin voru afklippt af lögreglu getur verið um fleiri en einn stað að ræða. Upplýsingar um staðsetningu merkjanna fást þó alltaf hjá Umferðarstofu í síma 580-2000.

Stuðningsleiðarkerfi
Stuðningsleiðarkerfi

Hér erum við!

Aðalskoðun hf,
Hjallahrauni 4, 220 Hafnafjörður
Sími 590 6900, Fax 590 6910