Hvað þarf maður að vera gamall til að kaupa og selja ökutæki ?
Samkvæmt lögræðislögum þarf aðili að vera orðinn 18 ára til að mega kaupa og selja ökutæki. Ef aðili er yngri þarf samþykki sýslumanns (yfirlögráðanda) fyrir kaupum og sölu.
Þarf leyfi frá sýslumanni ef meðeigandi er yngri en 18 ára ?
Um meðeiganda gilda sömu reglur og um aðaleiganda og því þarf samþykki sýslumanns ef meðeigandi er ekki orðinn 18 ára.
Hvaða þýðingu hefur skráning meðeiganda ?
Um meðeiganda gilda sömu reglur og um aðaleiganda. Allir eigendur teljast jafnir að lögum, nema annað komi sérstaklega fram.
Skipta undirritanir á tilkynningu miklu máli ?
Eigendaskipti eru ekki skráð nema tilkynning sé undirrituð af öllum aðilum og undirritanir vottaðar af minnst einum votti. Ef undirritað er fyrir hönd aðila verður að framvísa umboði.
Þarf vott á tilkynningu ef eigendaskiptin eru innan fjölskyldunnar ?
Það þarf alltaf vott að undirritun aðila á eigendaskiptatilkynningu. Vottur staðfestir að réttir aðilar hafi undirritað tilkynninguna.