Hlutverk:
Hlutverk
Aðalskoðunar hf. er að vinna á framsækinn hátt að eftirlitsstarfsemi með því að
starfrækja óháða faggilta skoðunarstofu samkvæmt staðlinum IST EN ISO/IEC 17020
og skapa fyrirtækinu um leið trausta ímynd.
Jafnframt að auka velferð viðskiptavina og almennings með skipulögðum
forvörnum og kerfisbundnu eftirliti og draga þannig úr líkum á heilsu- og
fjárhagstjóni.
Gæðastefna:
·
Aðalskoðun hf. uppfyllir kröfur
sem gerðar eru til faggiltra óháðra skoðunarstofa, en í því felst að skoða
vörur og búnað í samræmi við reglur stjórnvalda um verklag, aðbúnað og
tækjabúnað ásamt kröfum um hlutleysi og hæfni.
·
Með því að beita aðferðum
gæðastjórnunar og hafa til staðar skilvirkt gæðakerfi, sem lýst er á
skjalfestan hátt, mun Aðalskoðun hf. uppfylla þarfir viðskiptavina.
·
Með notkun gæðaeftirlitskerfa,
þjónustukannanna og með því að líta á samskipti við viðskiptavini og stjórnvöld
sem úrslitaþátt í veitingu þjónustu mun Aðalskoðun hf. geta lagt mat á gæði
starfsemi sinnar sem stöðugt skal endurrýnd og gæðin bætt.
·
Aðalskoðun hf. stefnir að góðum
og traustum tengslum við viðskiptavini sína, með því að skynja þarfir þeirra og
bjóða þeim þjónustu sem felur í sér faglega skoðun, stuttan biðtíma, lipurð og
sanngjarnt verð þannig að væntingar viðskiptavina verði uppfylltar og þeir
verði ánægðir.
·
Aðalskoðun hf. leggur áherslu á
að hafa yfir að ráða hæfu viðmótsgóðu starfsfólki með tilskylda menntun sem
stundi fagleg vinnubrögð, hafi skilgreind hlutverk, virki hæfileika sína, taki
þátt í endurmenntun og sýni framfarir. Á þennan hátt mun fyrirtækið og
starfsfólk þess ná settum markmiðum.
·
Stjórnendur Aðalskoðunar hf.
skulu hafa tilskylda menntun, hæfni og reynslu. Þeir skulu temja sér
fagmennsku, áreiðanleika, rétt viðskiptasiðferði og beita skapandi
starfsaðferðum með því að örva og hvetja starfsmenn til dáða, skapa traust
tengsl og vera í nálægð við viðskiptavini fyrirtækisins.
Gæðamarkmið:
Aðalskoðun hf setur sér
eftirfarandi markmið í gæðamálum:
·
Að viðhalda faggildingu samkvæmt
staðlinum IST EN ISO/IEC 17020.
· Að framfylgja og viðhalda
verklagsreglum í gæðahandbók skoðunarstofunnar.
·
Að veita viðskiptavinum þjónustu
á umsömdum tíma
· Að fylgjast með löggjöf og þróun
er snertir starfssvið skoðunarstofunnar
· Að þjálfa starfsmenn sína og tryggja
endurmenntun sem nauðsynleg er hverju sinni.
Framkvæmdastjóri
Aðalskoðunar hf skal tryggja að öllum starfsmönnum skoðunarsstofunnar sé
gæðastefnan ljós, henni sé framfylgt og viðhaldið.
Framkvæmdastjóri Aðalskoðunar hf.