16.7.2010
5 í endastaf sleppa á þriðjudag 3. ágúst.
Óskoðuð ökutæki sem fylgja númerareglu, þ.e. bifreiðar og eftirvagnar í
almennri notkun, og eru með endastafinn 5 í númeri hafa frest til mánaðamóta til að mæta í skoðun. Þar sem lokadagur júlímánaðar ber upp á frídag hafa þeir hins vegar kost á að mæta til skoðunar á þriðjudeginum 3. ágúst án þess að fá álagt 15.000 kr. vanrækslugjald frá ríkinu. Jafnframt fellur um mánaðarmótin niður
á sama tíma helmingsaflsáttur þeirra ökutækja sem eru með 4 í endastaf og komu ekki í
skoðun fyrir seinustu mánaðarmót. Þeir sem ekki komast í skoðun í dag eiga því kost á því að gera það á fyrsta vinnudegi eftir verslunarmannahelgi.
Einnig má benda á að númerarelgan á ekki við um húsbíla, fornbíla og
bifhjól og ferðarvagna, skoðun þeirra skal lokið fyrir 1. ágúst óháð
endastaf í númeri.Þessi ökutæki hafa síðan tveggja mánaðarfrest eftir það og vanrækslugald leggst því á þau 1.október.
<<Til baka