Beint í efni vefsins


Lesa frétt

1.6.2010

Krúser skoðunardagur

Aðalskoðun og Krúserklúbburinn hafa haft samstarf um árlegan skoðunardag að vori fyrir meðlimi klúbbsins og hefur samstarfið verið með eindæmum gott. Krúserklúbburinn er áhugamannaklúbbur um gamla og klassíska bíla og m.a. markmiða klúbbsins er að standa vörð um hagsmuni bíleigenda, viðhalda klassískum bílum og stuðla að varðveislu þeirra og stuðla að góðakstri innan félagsins og góðri umgengni um bíla og sögu þeirra.
Mjög góð mæting var á skoðunardaginn í blíðskaparveðri og góð stemming. Að lokinni skoðun voru grillaðir hamborgara fyrir félagsmenn og starfsfólk Aðalskoðunar og nýstofnað Krúserband lék blústónlist af miklum móð.


Frá Krúserskoðunardegi Aðalskoðunar.


Krúserbandið flutti nokkra blússtandarda.


Skoðunarmenn voru uppáklæddir í tilefni dagsins.
<<Til baka

Ertu með spurningu?

Ef þig vantar einhverjar aukalegar upplýsingar þá getur þú haft samband hér að neðan.

Stuðningsleiðarkerfi
Stuðningsleiðarkerfi

Hér erum við!

Aðalskoðun hf,
Hjallahrauni 4, 220 Hafnafjörður
Sími 590 6900, Fax 590 6910