16.7.2010
Ferðavagnar fyrir 1. ágúst (lokafrestur 30. sept)
Ferðavagnar skráðir 2006 eiga að skoðast fyrir 1. ágúst á þessu ári.
Eins og með önnur ökutæki hafa þeir síðan tveggja mánaða frest eftir það
og lokafrestur er því fyrir 1. október. Eftir það leggst vanræsklugjald ríkissjóðs á óskoðaða ferðavagna.
Ferðavagnar skoðast í fyrsta skipti á fjórða ári frá nýskráningu og síðan á tveggja ára fresti eftir það. Vagnar skráðir 2006 sem koma í fyrstu skoðun á þessu ári munu því næst þurfa að koma í skoðun árið 2012.
<<Til baka