25.7.2011
Ferðavagnar fyrir 1. ágúst (lokafrestur 30. sept)
Ferðavagnar sem á að skoða á þessu ári eiga að mæta til skoðunar fyrir 1. ágúst. Eins og með önnur ökutæki hafa þeir síðan tveggja mánaða frest eftir það og lokafrestur er því fyrir 1. október. Eftir það leggst vanræsklugjald ríkissjóðs á óskoðaða ferðavagna sem eiga að skoðast á þessu ári.
Ferðavagnar skoðast í fyrsta skipti á fjórða ári frá nýskráningu og síðan á tveggja ára fresti eftir það. Vagnar skráðir 2007 og 2005 og fyrr sem eiga að koma í skoðun á þessu ári munu því næst þurfa að koma í skoðun árið 2013.
<<Til baka