Nánar um eldsneytisvinninga Aðalskoðunar.
Dregið verður föstudaginn 8. apríl, fimmtudaginn 14. apríl, miðvikudaginn 20. apríl og föstudaginn 29. apríl. Öll fastnúmer þeirra ökutækja sem hafa verið skoðuð í mánuðinum fram að úrdráttardegi eru í pottinum í hverjum úrdrætti. Þannig eru þeir sem láta skoða snemma með aukna möguleika á vinningi.
Vinningshafar eru skráðir eigendur ökutækjanna. Nöfn vinningshafa verða birt á heimasíðu Aðalskoðunar en jafnframt verður haft samband við vinningshafa símleiðis finnist upplýsingar um símanúmer viðkomandi eiganda. Ökutæki í eigu Aðalskoðunar eða starfsmanna Aðalskoðunar geta ekki farið í pottinn.