Nánar um eldsneytisvinninga Aðalskoðunar.
Dregið er tvisvar í mánuði. Öll fastnúmer þeirra ökutækja sem hafa verið skoðuð frá síðasta úrdrætti fram að úrdráttardegi eru í pottinum í hverjum úrdrætti.
Vinningshafar eru skráðir eigendur ökutækjanna. Nöfn vinningshafa verða birt á heimasíðu Aðalskoðunar en jafnframt verður haft samband við vinningshafa símleiðis finnist upplýsingar um símanúmer viðkomandi eiganda. Ökutæki í eigu Aðalskoðunar eða starfsmanna Aðalskoðunar geta ekki farið í pottinn.